Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði.

 Í Fréttir, Sigurborg SH 12

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði með 59 tonn af því voru um 20 tonn af skarkola, 18 tonn af þorski, 10 tonn af steinbít og 8 tonn af ýsu. Minna í öðrum tegundum. Aflinn í Sigurborgu veiddist meðal annars í Nesdýpi.

Áætlað er að Sigurborg haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter