Nemendur úr leikskólanum Sólvöllum heimsóttu fiskvinnslu Soffaníasar Cecilssonar í Grundarfirði í gær, en leikskólinn hefur þann sið að áður en börnin útskrifast reyna þau að heimsækja vinnustaði allra foreldra nemenda í elsta árgangi en þess bera að geta að þrír útskriftarnemendur eiga foreldra sem starfa hjá Soffaníasi í þetta sinn. Þetta eru nemendur fæddir árið 2021, en á Sólvöllum útskrifast nemendur 5 ára og taka síðasta leikskólaárið í grunnskólanum áður en þau hefja nám í fyrsta bekk.
Símon Grétar Rúnarsson, rekstarstjóri, og Mjöll Guðjónsdóttir, framleiðslustjóri, sýndu börnunum vinnsluna eftir að þau klæddu sig upp í viðeigandi hlífðarbúnað. Börnin voru mjög áhugasöm og spurðu margra spurninga en fannst það frekar skrýtið þegar þau fengu að sjá hvernig hausarnir eru fjarlægðir af fiskinum. Skemmtilegast fannst þeim þó að fá að setjast upp í lyftarann og prófa flautuna.
Meðfylgjandi er mynd af hópnum uppstríluðum. Á myndina vantar þau Laimo og Mjöll.