Stutt milli lægða
Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 196 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Óðinn Ómarsson skipstjóra og spurði um túrinn.
„Við vorum tæpa sex daga á veiðum og vorum fyrir vestan, á Halanum, Kögurgrunni, Þverálshorni og enduðum á Skagagrunni. Það hefur gengið vel að fiska en hefur verið stutt á milli lægðanna þetta haustið. Þegar veðrið lagast þá fer það að versna,“ sagði Ágúst.