„Það hafa komið skot í þetta“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 126 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding Hákonarson stýrimann og spurði um túrinn.

„Við vorum rúma fjóra sólarhringa á veiðum og vorum á Rifsbanka, Brettingstöðum og Digranesflaki. Það hefur verið heldur róleg veiði en það hafa komið skot í þetta af og til. Veðrið hefur verið með besta móti miðað við árstíma, ágætis veður,“ sagði Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter