„Það var ágætis veiði í ufsa og þorski“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 209 tonn. Þetta var viku veiðiferð, en fimm sólarhringar á veiðum meðal annars í Kögugrunni og Flugbrautinni. Það var ágætis veiði í ufsa og þorski og blíðu veður var í túrnum.