„Það var ekki um auðugan garð að gresja“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 120 tonn og uppistaða aflans var þorskur og ufsi. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding Hákonarson stýrimann og spurði um túrinn.

„Við vorum rúma fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Tungunni, Þverál, Þverálshorni og Halanum. Það var ekki um auðugan garð að gresja í þorski en við fengum fínt skot í þetta í restina. Veðrið hefur verið mjög gott,“ sagði Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter