„Það var góð veiði allan tímann“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 197 tonn.
Heimasíðan hafði samband við Hermann Einarsson skipstjóra „Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum. Veiðiferðin byrjaði djúpt suðvestur af Reykjanesi, fórum svo á Eldeyjarbanka og Flugbrautina, og enduðum á Vestfjarðarmiðum. Það var góð veiði allan tímann, og veðrið var gott fyrir utan síðasta daginn þá var kaldafýla 15-18 m/s“ segir Hermann.