„Það var mjög góð veiði“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 117 tonn og uppistaða aflans var þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum ca. tvo sólarhringa á veiðum og vorum í Kantinum vestan við Hala. Það var mjög góð veiði þegar var ekki frátafir vegna veðurs. Veðrið var þokkalegt þegar gaf,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter