„Það var mokveiði“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 er á leið til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 98 tonn, uppistaða aflans er um 88 tonn af þorski og 4 tonn af karfa. Drangey var meðal annars á veiðum á Strandagrunni. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding Hákonarson stýrimann.

„Við vorum tvo sólarhringa á veiðum, vorum á Strandagrunni og tókum eitt hal í restina á Sporðagrunni. Það var mokveiði fyrsta einn og hálfa sólarhringinn en svo fór að draga verulega úr veiðinni. Það var blíðuveður,“ sagði Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey