„Þegar veðrið var til friðs var veiðin mjög fín“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 landaði á Sauðárkróki í gær. Heildarmagn afla um borð var um 165 tonn, uppistaða aflans var að mestu þorskur, en smávegis var af ýsu, karfa og ufsa. Rætt var stuttlega við Bárð Eyþórsson skipstjóra „Veiðiferðin tók 6 daga, en við vorum á veiðum í c.a 4 sólarhringa. Við byrjuðum á Kolluál þar sem það var eini staðurinn sem hægt var að vera á sökum veðurs, veiðin þar var frekar dræm. Þaðan var haldið vestur á Kant og svo áleiðis á Þverálshorn þar sem veiðin var mjög fín, en þurftum að flýja þaðan sökum veðurs. Þegar veðrið var til friðs var veiðin mjög fín“ segir Bárður.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter