„Þokkalega gott veður“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 199 tonn og uppistaða aflans var þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Tunginni og í Kantinum vestan við Hala. Það var góð veiði og þokkalega gott veður allan tímann,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter