„Þorskurinn er farinn að ganga út á togslóð eftir hrygningu“
Drangey SK2 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 213 tonn. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra „Við vorum rúmlega fimm sólarhringa á veiðum, á Selvogsbanka og Eldeyjarbanka. Við fengum góðan dag á Selvogsbanka í upphafi en siðan varð róleg veiði, þá kipptum við vestur á Eldeyjarbanka þar var vaxandi veiði. Fyrst var aflinn aðeins blandaður en síðan var nánast hreinn þorskur sem fékkst. Þorskurinn er farinn að ganga út á togslóð eftir hrygningu. Veður hefur verið gott“ segir Ágúst.