Tímamót hjá Jonna
Okkar ástsæli – og ekki síður farsæli – skipstjóri Guðjón Guðjónsson, sem flestir þekkja væntanlega ekki nema sem Jonna, hoppaði alkominn í land í morgun eftir rúmlega hálfa öld á sjó. Hann hefur á þessum árum gert víðreist um sjóinn en stærir sig af því um leið að hann hafi aldrei flutt skattkortið sitt af Skagaströndinni enda hafi líf hans verið í föstum skorðum alla tíð. Undir það tekur eflaust eiginkona hans, Obba, öðru nafni Guðrún Soffía Pétursdóttir sem fær nú karlinn sinn loksins heim eftir langt úthald.
Jonni fékk skipstjórnarréttindi sín árið 1979 og byrjaði strax á dekkinu á Arnari HU-1. Þar tók hann svo við hlutverki stýrimanns og skipstjóra árið 1982 og gegndi því starfi í áratug. Þaðan lá leiðin í nokkur ár sem skipstjóri yfir á Örvar sem einnig var gerður út frá Skagaströnd og loks í skipstjórastólinn á frystitogaranum Arnari HU-1 árið 1996.
„Jú, auðvitað fylgir því ákveðinn söknuður að kveðja góðan vinnustað, trausta skipsfélaga og síðast en ekki síst atvinnugrein sem skiptir samfélagið svo miklu máli og er fyrir vikið endalaust á milli tannanna á fólki“, segir Jonni. „Það var vel tekið á móti mér á bryggjunni í morgun og auðvitað hlakka ég til aukinna samvista við börnin okkar Obbu og tíu afa- og ömmubörnin sem þau hafa fært okkur. Ég verð núna stoltur eldri borgari sem hefur aldrei þegið bætur af nokkru tagi frá samfélaginu og ætla að standa áfram vörð um sjálfstæði mitt í svoleiðis efnum. Svo fæ ég meiri tíma til þess að pirra mig á allri vitleysunni sem sett er fram í fjölmiðlum um sjávarútveginn. Vonandi mun vanþekkingin sem þar ræður oft ferðinni ekki hafa of mikil áhrif á ákvarðanir stjórnvalda hverju sinni.“
Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood: „Ég samgleðst Jonna innilega með þessi tímamót og veit að hann er alveg tilbúinn til þess að koma í land. Góður skipstjóri er á vissan hátt framkvæmdastjóri um borð í hverjum túr og þar hefur Jonni verið heiðarlegur, sanngjarn og mikill leiðtogi fyrir utan auðvitað að vera þessi ósvikna aflakló sem við öll þekkjum. Jonni reyndist mér frá fyrsta degi hér hjá FISK Seafood gríðarlega traustur bakhjarl og ég kveð hann með miklum söknuði um leið og ég óska honum góðra tíma í fríinu sem framundan er.“