„Veðrið bara með besta móti“

 Í Fréttir, Sigurborg SH 12

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla var um 70 tonn og uppistaða aflans var skarkoli. Heimasíðan hafði samband við Guðbjörn Jónsson stýrimann og spurði um veiðiferðina.

„Veiðiferðin var sex dagar höfn í höfn, við vorum fimm sólarhringa á veiðum. Aflinn var umm 70 tonn, vorum aðallega í Nesdýpinu á veiðum, sem gengu ágætlega og uppistaðan steinbítur og rauðspretta. Veðrið var bara með besta móti þennan túrinn,“ sagði Guðbjörn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter