„Veðrið ekkert sérstaklega gott miðað við árstíma“

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 482 tonn, þar af um 226 tonn af ufsa, 115 tonn af gullkarfa og 111 tonn af þorski. Aflaverðmæti eru um 240 milljónir. Heimasíðan hafði samband við Guðjón Guðjónsson skipstjóra og spurði hann út í túrinn.

„Við fórum út 22. júlí og í land 20. ágúst. Við vorum á veiðum frá Víkurál að Grímsey og erum með alls 20.400 kassa og 482 tonn af afurðum. Veðrið hefur ekkert verið sérstaklega gott miðað við árstíma“ sagði Guðjón.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter