„Veðrið er búið að vera með eindæmum leiðinlegt“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 83 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum tvo og hálfan sólarhring á veiðum en urðum að hætta vegna bilunar og fara heim. Við vorum á Strandagrunni og í Víkurál og veiðarnar gengu vel. Veðrið er búið að vera með eindæmum leiðinlegt allan túrinn,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter