„Veðrið með eindæmum“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 129 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum, vorum í Þverál, kantinum vestan við Hala og á Halanum. Það var mjög góð veiði í þorskinum en lítið í ufsanum. Veðrið var með eindæmum gott allan túrinn, sól og blíða,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter