Veðrið var með besta móti

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 55 tonn og uppistaða aflans var skarkoli. Heimasíðan hafði samband við Stefán Viðar Ólason stýrimaður og spurði út í túrinn.

„Í þessari veiðiferð vorum við í um fimm sólarhringa á veiðum vestur af Garðskaga. Við vorum þar allan túrinn, fyrir utan einn sólarhring þegar við fórum á Eldeyjarbanka. Veiðin var nokkuð jöfn og veðrið var með besta móti,“ sagði Stefán Viðar.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey