„Veðrið var rysjótt“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 134 tonn, uppistaða aflans var um 79 tonn af þorski, 15 tonn af ýsu og 26 tonn af ufsa. Málmey var meðal annars á veiðum á Sléttugrunni. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum sex daga á veiðum og vorum á Groves, Sléttugrunni, Skagagrunni og Tungunni. Veiðarnar voru frekar rólegar, einna skást í þorskinum. Veðrið var rysjótt, týbískar haustlægðir annað slagið,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter