Veiðarnar gengu fínt

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð er um 192 tonn og uppistaða aflans er þorskur og karfi.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum ca sex sólarhringa á veiðum og vorum á Fjöllunum og Eldeyjarbanka. Veiðarnar gengu fín og góð veiði. Það var gott veður allan túrinn,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter