„Veiðarnar gengu glimrandi vel“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki til millilöndunar.  Heildarmagn afla um borð var um 121 tonn.  Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra.

„Við vorum á veiðum í rúmlega tvo sólarhringa, byrjuðum á Straumnesbanka og færðum okkur svo yfir á Kantinn vestan við Halann.  Veiðarnar gengu glimrandi vel, uppistaða aflans var þorskur og ýsu, minna í öðrum tegundum.  Allan túrinn var blíðu veður“ segir Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey