„Veiðarnar gengu þokkalega“
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 77 tonn og uppistaða aflans var steinbítur. Heimasíðan hafði samband við Stefán V. Ólafsson stýrimaður og spurði út í túrinn.
„Við vorum í rúma fimm sólarhringa í þessum túr. Við byrjuðum uppá Fláka en fórum svo að fikra okkur norður á Vestfjarðarmið. Veiðarnar gengu þokkalega og það var bara þokkalegasta veður þennan túrinn. Aflinn er samansettur af steinbít, þorski og kola,“ sagði Stefán