„Veiðarnar gengu þokkalega“

 In Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 119 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Ágúst Guðmundsson stýrimann og spurði um túrinn.

„Við vorum fjóra daga á veiðum, aðallega á Grímseyjarsvæðinu. Veiðarnar gengu þokkalega en það var skítabræla á köflum,“ sagði Guðmundur.

Start typing and press Enter to search

Drangey