„Veiðarnar gengu þokkalega vel“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 150 tonn og uppistaða aflans er þorskur og ufsi.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum og vorum á Eldeyjarbanka, Jökuldýpi og Reykjafjarðarál. Veiðarnar gengu þokkalega vel. Veðrið hefur verið frekar leiðinlegt, 15-22 m/s allan túrinn,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter