„Veiðarnar gengu þokkalega“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 147 tonn, uppistaða aflans var að mestu þorskur.  Heimasíðan ræddi við Bárð Eyþórsson skipstjóra „Veiðiferðin stóð yfir í sex sólarhringa, en við vorum á veiðum í tæplega fimm.  Við vorum m.a. í Jökuldýpi, Eldeyjarbanka og á Halanum, veiðarnar gengu þokkalega það voru að koma góð skot í þær.  Við fengum allar tegundir af veðri í túrnum, alveg frá rjómablíðu og yfir í 30 metra“ segir Bárður.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter