„Veiðarnar gengu vel“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 107 tonn og uppistaða aflans var þorskur, ýsa og ufsi. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum, fyrst á Groves, svo á Sléttugrunni og enduðum á Skagagrunni. Veiðarnar gengu vel fyrst um sinn en það var rólegra í restina. Veðrið var frekar leiðinlegt, fengum einn sólarhring góðan,“ sagði Þórarinn.

 

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter