„Veiðarnar gengu vel“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 159 tonn og uppistaða aflans er þorskur og ufsi.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðverssons skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Þverálshorni, Sneiðinni og Strandagrunni. Veiðarnar gengu vel og það var blíða allan túrinn,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter