„Veiðarnar gengu vel á meðan veður var skaplegt“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 177 tonn. Rætt var við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra „Við vorum rúma fimm sólarhringa á veiðum, byrjuðum í ufsa á Selvogsbanka og Reykjanesgrunni. Tókum svo þorskinn í Jökuldýpi og Þverálshorni og enduðum á Skagagrunni. Veiðarnar gengu vel á meðan veður var skaplegt, uppistaða aflans er þorskur og ufsi og smávegis af karfa og ýsu“ segir Þórarinn.