„Veiðarnar hafa gengið ágætlega“
Farsæll SH30 er á leið í land í Grundarfirði eftir fimm daga veiðiferð. Heildarmagn afla um borð er um 68 tonn og er uppistaða ufsi, skarkoli, þorskur og ýsa. Rætt var við Stefán stýrimann „Við vorum á veiðum í nesdýpi og Vestur í kanti. Veiðarnar hafa gengið ágætlega og blíðskapar veður var alla veiðiferðina“ segir Stefán.