„Veiðarnar hafa gengið ágætlega“

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflinn um borð samsvarar um 729 tonnum upp úr sjó, þar af um 241 tonnum af ufsa og 230 tonnum af gullkarfa. Aflaverðmæti er um 318 milljónir.

Heimasíðan hafði samband við Guðmund Henry Stefánsson skipstjóra og spurði hann um túrinn.

„Við fórum 4. janúar og höfum verið að veiðum frá Skagagrunni og að Reykjanesgrunni. Veiðarnar hafa gengið ágætlega þegar viðrað hefur til veiða. Það var landað tæpum 22.000 kössum“ sagði Guðmundur Henry.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter