Veiðarnar voru mjög góðar
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 197 tonn og uppistaða aflans var þorskur og ufsi. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.
„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Sléttugrunni og Þverálshorni. Veiðarnar voru mjög góðar en veðrið var frekar leiðinlegt á köflum,“ sagði Þórarinn.
Málmey heldur aftur til veiða á miðvikudag.