„Veiðarnar voru rólegar allan túrinn“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 78 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum. Við vorum á Strandagrunni, Vestaragrunni og Vesturkantinum. Veiðarnar voru rólegar allan túrinn og veðrið var fínt,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter