Veiðin hefur gengið ljómandi vel.

 In Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki með 170 tonn af því voru um 122 tonn af þorski, 14 tonn af ufsa, 12 tonn af ýsu og 7 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Drangey var á veiðum við Vestfjarðarmið og gekk veiðin á halamiðum ljómandi vel sökum þess að slóðin hafði verið friðuð í 8 daga vegna veðurs. Veðrið hefur verið risjótt en þó hafa komið tveir hægviðrisdagar.

Áætlað er að Drangey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Start typing and press Enter to search