„Veiðin var ágæt, bæði í þorsk og ýsu“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 154 tonn og uppistaða aflans var þorskur og ýsa. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði hann um túrinn.
„Við vorum rúma 5 sólarhringa á veiðum. Fyrst vorum við á Strandagrunni, Þverálshorni og enduðum í Reykjafjarðarál og Skagagrunni. Veiðin var ágæt, bæði í þorsk og ýsu. Veðrið var mjög gott allan túrinn, nánast logn allan tímann“, sagði Þórarinn.