„Veiðin var fín í steinbít“

 In Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 70 tonn og uppistaða aflans var skarkoli og steinbítur. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Kristján Snorrason skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum, vorum víða á Grunnslóð Vestfjarða en enduðum suðvestur af Bjargi. Veðrið var sæmilegt allan túrinn og veiðin var fín í steinbít. Afli var steinbítur, koli, þorskur og ýsa,“ sagði Guðmundur.

Start typing and press Enter to search