„Veiðin var góð“
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði með 70 tonn. Rætt var við Guðmund Kristján Snorrason skipstjóra „Við vorum á veiðum í þrjá sólarhringa á Selvogsbanka, vestan kaldi fyrstu tvo dagana en blíða síðasta sólarhringinn. Veiðin var góð, og uppistaða aflans var ufsi og þorskur“ segir Guðmundur.