„Veiðin var róleg“

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 46 tonn og uppistaða aflans var þorskur, ýsa og skarkoli. Heimsíðan hafði samband við Guðmund Kristján Snorrason og spurði um túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum. Við byrjuðum á Vestfjarðamiðum í sólarhring og vorum svo á Flákanum út túrinn. Veiðin var róleg og veðrið var austan og norðaustan 15-20 m/s mest allan túrinn,“ sagði Guðmundur.

 

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter