„Vorum í Nesdýpi allan túrinn“
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 50 tonn og uppistaða aflans var skarkoli. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Kristján Snorrason og spurði út í túrinn.
„Við fórum út 2. janúar og vorum fjóra sólarhringa á veiðum. Við vorum í Nesdýpi allan túrinn í kolaveiði. Veður var fínt nema í einn sólarhring en þá var suðvestan kaldi,“ sagði Guðmundur.