Marel dagur í landvinnslu.

Föstudaginn 15. nóvember var haldin Marel dagur í landvinnslu FISK á Sauðárkróki. Starfsmenn Marel komu og sýndu í sýndarveruleika þann búnað og lausnir sem fyrirhugað er að setja upp í landvinnslu FISK næsta sumar. Starfsfólk FISK sýndi þessu mikinn áhuga og komu með margar góðar hugmyndir og athugasemdir sem Marel menn tóku fagnandi.
Drangey SK2 landaði á Sauðárkróki.

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki með 91 tonn, af því voru um 69 tonn af þorski, 8 tonn af ufsa, 7 tonn af ýsu og 1 tonn af karfa. Drangey var meðal annars á veiðum við Ostahrygg og Þverálshorn. Drangey hélt aftur til veiða að löndun lokinni.