Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 148 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Málmey var meðal annars á veiðum á Grímseyjarsvæðinu og Sporðagrunni.
„Veiðarnar gengu þokkalega“

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 77 tonn og uppistaða aflans var steinbítur. Heimasíðan hafði samband við Stefán V. Ólafsson stýrimaður og spurði út í túrinn. „Við vorum í rúma fimm sólarhringa í þessum túr. Við byrjuðum uppá Fláka en fórum svo að fikra okkur norður á Vestfjarðarmið. […]