Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 68 tonn og uppistaða aflans var skarkoli. Farsæll var meðal annars á veiðum á Herðatré.

„Veðrið með eindæmum“

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 129 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn. „Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum, vorum í Þverál, kantinum vestan við Hala og á Halanum. Það var mjög góð veiði í þorskinum […]

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla var um 90 tonn og uppistaða aflans var ufsi. Sigurborg var meðal annars á veiðum í Kantinum.

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 145 tonn og uppistaða aflans voru um 121 tonn af þorski. Drangey var meðal annars á veiðum á Þverálshorni og Þverál.