Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var 55 tonn, þar af um 19 tonn af skarkola og 22 tonn af þorski. Farsæll var meðal annars á veiðum á Nesdýpi og Herðatré.

„Mjög góð veiði“

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 205 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn. „Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum og vorum á Dohrnbanka og Skagagrunni. Mjög góð veiði og þær gengu vel. Það var ágætisveður allan […]