„Það var mjög góð veiði“

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 117 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn. „Við vorum ca. tvo sólarhringa á veiðum og vorum í Kantinum vestan við Hala. Það var mjög góð veiði þegar var ekki frátafir […]
Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var 48 tonn, þar af um 13 tonn af þorski og 12 tonn af skarkola. Farsæll var meðal annars á veiðum norðvestur af Bjargi.
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 74 tonn, uppistaða aflans var steinbítur og þorskur. Sigurborg var m.a á veiðum í Grunnkanti.
Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 183 tonn og uppistaða aflans voru um 119 tonn af þorski. Drangey var meðal annars á veiðum í Kantinum vestan við Halann.