„Erfitt að ná í ufsann“

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er 156 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra og spurði um túrinn. „Við vorum sex daga á veiðum. Við höfum mest verið á Grunnslóðinni út fyrir Vestfjörðum, einnig á Halanum og Þverálshorni. Þetta hefur nuddast ágætlega og aflinn […]
Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 49 tonn, þar af um 20 tonn af þorski. Farsæll var meðal annars á veiðum við Flökin.
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 51 tonn og var aflinn blandaður, þ.á.m. 18 tonn af þorski og 17 tonn af skarkola. Sigurborg var m.a á veiðum við Herðatré.