Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 landar 73 tonnum af fiski í Grundarfirði í dag. Uppistaða aflans eru um 33 tonn af steinbít og um 17 tonn af þorski, en minna í öðrum tegundum. Farsæll var meðal annars á veiðum í Nesdýpi og á Grunnkanti. “Þessi túr gekk bara ágætlega, nema það vantaði alla ýsu á staðinn.” Sagði […]

Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn á laugardaginn með 100 tonn af fiski. Uppistaða aflans voru um 53 tonn af steinbít, um 19 tonn af þorski og um 10 tonn af karfa. Sigurborg hélt sig í kringum Bjarg allan þennan túr.

Drangey SK 2 landar í Grundarfirði

Drangey SK 2 landaði 180 tonna afla í Grundarfirði í gær, þar af voru um 86 tonn af þorski, um 50 tonn af steinbít og um 21 tonn af karfa, en minna í öðrum tegundum. Drangey hélt sig að mestu á Látragrunni þennan túrinn en tók þó einnig höl við Víkurál og Grunnkant. Davíð Már […]