Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 landar 73 tonnum af fiski í Grundarfirði í dag. Uppistaða aflans eru um 33 tonn af steinbít og um 17 tonn af þorski, en minna í öðrum tegundum.

Farsæll var meðal annars á veiðum í Nesdýpi og á Grunnkanti.

“Þessi túr gekk bara ágætlega, nema það vantaði alla ýsu á staðinn.” Sagði Jóhann Garðarsson, skipstjóri. “Veðrið var ljómandi gott allan túrinn og veiðin bara nokkuð jöfn, mest af steinbít en hann veiðist eiginlega bara í myrkri og það fer minnkandi með hverjum deginum.” 

Farsæll hefur verið á veiðum á öðrum svæðum en venjulega frá því eftir páska vegna þess að svokallað hrygningarstopp hefur verið í gildi frá byrjun apríl, en þá er bannað að veiða þorsk, skarkola, blálöngu og steinbít innan skilgreindra hrygningasvæða, sem má sjá á myndinni hér að neðan (fengin á hafsjánni), gulmerkt. Hrygningarstoppi lýkur á morgun og þá getur Farsæll farið á veiðar á kunnuglegum slóðum aftur.

UMHVERFIS-
DAGUR