Drangey SK 2 landar í Grundarfirði

Drangey SK 2 kom til löndunar í Grundarfirði á sunnudaginn með 185 tonna afla, þetta voru um 125 tonn af ýsu, um 21 tonn af þorski, um 14 tonn af ufsa og um 13 tonn af karfa. “Við hófum veiðar á Flugbraut og fengum þar smávegis af karfa. Sigldum svo í brælukalda á Selvogsbanka og […]

Farsæll SH 30 landar í Þorlákshöfn

Farsæll SH 30 landaði 72 tonna afla í Þorlákshöfn á laugardaginn. Uppistaða aflans var stór þorskur, eða um 50 tonn, ýsan náði um 14 tonnum en minna í öðrum tegundum. Farsæll hóf veiðiferðina við Flökin en færði sig svo á Selvogsbanka og kláraði skammtinn þar í hvelli.