Drangey SK 2 landar í Grundarfirði

Drangey SK 2 kom til löndunar í Grundarfirði á sunnudaginn með 185 tonna afla, þetta voru um 125 tonn af ýsu, um 21 tonn af þorski, um 14 tonn af ufsa og um 13 tonn af karfa.

“Við hófum veiðar á Flugbraut og fengum þar smávegis af karfa. Sigldum svo í brælukalda á Selvogsbanka og fengum þar ýsu. Svo færðum við okkur vestar, á Reykjanesgrunn og leituðum af ufsa en þar var lítið að fá. Í lokin reyndum við að finna þorsk á Eldeyjarbanka en lentum í staðinn í mokveiði af ýsu.” Sagði Ágúst Óðinn Ómarsson, skipstjóri, ánægður með túrinn og feginn að vera kominn í land til þess að geta horft á leikinn (Tindastóll-Stjarnan, leikur 4). Tindastóll sigraði að sjálfsögðu leikinn og því má segja að Skagfirðingum hafi gengið vel á fleiri en einni vígstöð um helgina.

Á myndinni, sem var tekin af matsveininum, Davíð Má Sigurðssyni, má sjá Tindastólsfána blakta aftan á skipinu.

UMHVERFIS-
DAGUR