Arnar HU 1 landar á Sauðárkróki

Arnar HU 1 kom í land á Sauðárkróki í nótt með 610 tonna afla og hefst löndun úr skipinu í dag. Aflinn telur 19.017 kassa og heildarverðmæti eru um 470 milljónir króna. Skipting aflans var eftirfarandi: um 240 tonn af þorski, um 195 tonn af ýsu, um 130 tonn af gullkarfa, um 30 tonn af […]

Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 103 tonn, þar af 80 tonn af þorski og 15 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. Drangey var á veiðum á Skagagrunni, Strandagrunni og norðan við Kolbeinsey.