Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 103 tonn, þar af 80 tonn af þorski og 15 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.

Drangey var á veiðum á Skagagrunni, Strandagrunni og norðan við Kolbeinsey.